What's New

Stuðningur við nýtt stýrikerfi

App Description

Kveikjarinn er forrit til að þjálfa sköpun í formi skapandi skrifa. Kveikjarinn er með gagnagrunn með meira en 5200 atriðum sem nota má sem kveikjur til ritunnar. Kveikjarinn nýtist bæði í íslenskukennslu í skólum og fyrir hvern þann vill þjálfa ritunarhæfileika sína. Kveikjarinn er einnig gott verkfæri til að þjálfa tjáningu og sköpun. Sköpun hefur verið skilgreind sem einn af sex grunnþáttum menntunar.
Kveikjurrnar skiptast í eftirfarandi flokka:
• sögusvið og persónur
• textabrot
• málshættir
• fréttir
• lýsingar
• myndir
• listar
Þegar notandi ýtir á einn af flokkunum koma kveikjur af handahófi úr þeim flokk. Ef það voru lýsingar sem voru valdar gæti atriðið t.d. verið: áttavilltur draugur, forseti Íslands árið 2500, íþróttaleikur í augum geimveru eða eldhúsið hjá ömmu.
Notandi velur algjörlega hvernig hann notar kveikjurnar. Hægt er að nota aðeins eitt atriði sem kveikju eða blanda saman nokkrum atriðum. Í flokkunum sögusvið og persónur, textabrot og myndir er auðvelt að blanda saman nokkrum þeim atriðum sem birtast en auk þess er ekkert sem segir að ekki megi blanda saman atriðum úr mismunandi flokkum.
Markmið
Að notandi þjálfist í:
• skapandi skrifum
• að byggja upp texta
• að nota fjölbreyttar aðferðir til að lýsa aðstæðum, stöðum og persónum
• að nota jafnt ímyndunarafl og rökhyggju
• að þora að láta vaða
• að hugsa út fyrir boxið
Að þroska sköpunargáfu, tjáningarmáta og sjálfsvitund.
Höfundur Kveikjarans er Guðný Þorsteinsdóttir, B.Ed. í grunnskólakennarafræðum.
Gerð kveikjarans var styrkt af Menntamálaráðuneytinu.

iPhone Screenshots

(click to enlarge)

Kveikjarinn screenshot 1 Kveikjarinn screenshot 2 Kveikjarinn screenshot 3 Kveikjarinn screenshot 4 Kveikjarinn screenshot 5

iPad Screenshots

(click to enlarge)

Kveikjarinn screenshot 6 Kveikjarinn screenshot 7 Kveikjarinn screenshot 8 Kveikjarinn screenshot 9 Kveikjarinn screenshot 10

App Changes

  • February 11, 2015 Initial release
  • May 16, 2015 Price decrease: $3.99 -> $1.99
  • May 20, 2015 Price increase: $1.99 -> $2.99
  • July 11, 2015 New version 1.1
  • October 27, 2015 Price decrease: $2.99 -> $1.99
  • November 08, 2016 Price increase: $1.99 -> $3.99
  • June 14, 2019 New version 1.2