App Description

Sögusteinninn er frábær viðbót á íslenskum bóka- og smáforritamarkaði. Um er að ræða spennandi, fróðlega og gagnvirka leikjabók og hljóðbók fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára.

Lekjabókin var styrkt af eftirtöldum aðilum:
• Menningarstyrkur tengdur nafni Jóhannesar Nordal
• Þróunarsjóður námsgagna

Leikjabókin skiptist í 11 myndskreytta kafla sem í senn er hægt að lesa og hlusta á. Í hverjum kafla er leikjaþraut tengd sögunni sem gerir lesanda kleift að vera þátttakandi í söguþræðinum.
Auk þess að vera kjörið lesefni fyrir börn veitir leikjabókin innsýn í íslenskan þjóðmenningararf.

Sagan fjallar um krakkana Helenu og Unnar sem búa yfir yfirnáttúrulegum hæfileikum. Þegar álfurinn Gjúki þarfnast aðstoðar þeirra dragast þau inn í Hulduheim og lenda í æsispennandi ævintýrum. Vættirnar í Hulduheimi lifa eins og Íslendingar gerðu fyrr á öldum. Í gegnum söguna kynnist lesandi því bæði þjóðsagnaarfinum og lifnaðarháttum Íslendinga áður fyrr

Sögusteinninn er hörkupspennandi og skemmtileg saga sem má lesa sér til afþreyingar en hún nýtist einnig í skólastarfi fyrir nemendur í 3. – 5. bekk.

Efni bókarinnar tengist eftirfarandi hæfniviðmiðum úr aðalnámskrá Grunnskóla. Að nemendur geti:

Íslenska
• nýtt sér og endursagt efni á rafrænu formi,
• valið sér lesefni eftir áhuga og þörf og lesið sögur, ljóð og fræðandi efni, sem hæfir lestrargetu, sér til ánægju og skilnings,
• lesið ævintýri, sögur og ljóð ætluð börnum,
• aflað sér upplýsinga úr ýmsum tiltækum gagnabrunnum, svo sem bókum og á rafrænu formi,
• valið bók eða annað lesefni og lesið sér til ánægju.

Samfélagsfræði
• bent á tengsl valinna þátta í samfélagi, náttúru, trú og lífsviðhorfi, einkum í nærsamfélaginu,
• nefnt dæmi um einkenni og stöðu Íslands í heiminum í ljósi legu, sögu og menningar,
• sagt frá einkennum og sögu heimabyggðar og tengslum við önnur svæði á Íslandi,
• aflað sér og nýtt vitneskju um samfélagsmálefni í námsgögnum og miðlum.
• rætt um samfélagið og notað valin hugtök í því samhengi,
• bent á dæmi um áhrif tækni og framkvæmda á mannlíf og umhverfi,
• komið auga á nokkra þætti sem hafa haft áhrif á mannlífið í tímans rás, svo sem umhverfi og skipulag samfélaga,
• sagt frá gerð og mótun íslensks samfélags fyrr og nú,
• bent á dæmi um hvernig sagan birtist í munum og minningum,

Upplýsingatækni
• nýtt rafrænt og gagnvirkt námsefni,

Textílmennt
• sagt frá íslensku hráefni og unnið með það á einfaldan hátt,


Heimilisfræði
• tjáð sig á einfaldan hátt um jákvæð samskipti við borðhald, helstu hátíðir Íslendinga, siði sem þeim fylgja og þjóðlegan mat.


Í kennsluleiðbeiningum er að finna hugmyndir að umræðuefni og verkefnahugmyndir til að nota með efni bókarinnar. Þau verkefni tengjast mörg fleiri hæfniviðmiðum sem eru talin upp í kennsluleiðbeiningunum. Kennsluleiðbeiningarnar er að finna á eftirfarandi slóð:
http://gebokano.com/Sogusteinninn/TilKennara.pdf

iPad Screenshots

(click to enlarge)

Sögusteinninn leikjabók screenshot 1 Sögusteinninn leikjabók screenshot 2 Sögusteinninn leikjabók screenshot 3 Sögusteinninn leikjabók screenshot 4 Sögusteinninn leikjabók screenshot 5 Sögusteinninn leikjabók screenshot 6 Sögusteinninn leikjabók screenshot 7 Sögusteinninn leikjabók screenshot 8 Sögusteinninn leikjabók screenshot 9 Sögusteinninn leikjabók screenshot 10

App Changes

  • September 04, 2019 Initial release